Stuttmyndir af boðberum frjálshyggjunar

Hvað ætli sé að þjóð sem kýs svona landráðamenn yfir sig. Gleymum því ekki að enn í dag er helmingur þjóðarinnar sem aðhyllist Sjálfstæðis- og Framsóknarmafíuna. Öflum sem komu okkur, börnum- og barnabörnum í ævarandi skuldaklafa.

Allir hugsandi íslendingar mega óttast að landráðaflokkur "sjálfstæðismanna" komist aftur til valda. Samkvæmt skoðanakönnunum er enn helmingur íslensku þjóðarinnar tilbúinn til að fylgja landráðaflokkum Sjálfstæðis og Framsóknar. Þar af er helmingur sem fylgir enn "Sjálfstæðisflokknum" Þessir pólitísku villingar minna helst á kerlingu sem fer ekki að heiman  þó hún sé barin af maka sínum. Slíkt fólk verður að leita sér aðstoðar, en hér vegna pólitísks ofbeldis, ofbeldis sem bitnar á allri þjóðinni og framtíð hennar. Mannkynssagan á að kenna okkur öllum að svona flokkshollusta er hættuleg. Stjórnmálaafl er ekki fótboltafélag. Ef menn ætla að hafa virkt lýðræði kostar það alltaf ábyrga hugsun.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur myndbönd sem ætti að fá einhverja til að hugsa sitt. Stefna svokallaðra "sjálfstæðismanna" snýst ekki um hag almennings heldur að halda völdum og útdeila auðæfum þjóðarinnar til sérvaldra.

Vorið 1991

Sjálfstæðisflokkurinn 1998

Gullkorn Hannesar Hólmsteins

Útrásarsögur Davíðs Oddssonar

Hroki og yfirlæti ráðamanna

Algert fífl þessi maður

Sjálfstæðisfasismi

Davíð Oddson Tribute

Framkoma fjármálaráðherra

Og að lokum skemmtiefni - en bæði í gamni og í alvöru

Hannes Hólmsteinn á Næturvaktinni

Gleymum því ekki þessi Hannes er enn í bankaráði Seðlabankans og kennir við Háskóla Íslands á kostnað almennings.

Íslenska efnahagsundrið - Hannes Hólmsteinn í Íslandi í dag

Það má líka brosa í gegn um tárin

Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn

Sagan mun kenna okkur að "Sjálfstæðisflokkurinn" er ekki stjórnmálaflokkur heldur uppsóp loddara og lögfræðinga sem kunna það eitt að græða og láta "sitt" fólk græða á kostnað almennings með eintómum blekkingum. Stefnum núna að því að afmá landráðaflokk "Sjálfstæðismanna" af kjörseðlum framtíðarinnar, baranna okkar vegna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mæltu manna heilastur Magnús. Sjálfstæðisflokkurinn er sannarlega böl sem þjóðin á að takast á við af festu og einurð eins og hvern annan illvígan sjúkdóm.

Jóhannes Ragnarsson, 3.2.2009 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband