Burt með bíla...

BURT MEÐ BÍLA ÚR ÞÉTTBÝLI ! Það að aka bíl í þéttbýli er jafn heimskulegt og að ganga um bæinn með byssu. Ef íbúar Akureyrar hefðu vit á því að vera ekki stöðugt úti að aka hefði drengurinn geta hjólað slysalaust úti á götu í notalegu og hljóðlátu bæjarsamfélagi. 

En svona gerast slysin á þeim stöðum þar sem bíllinn er hafður í fyrirrúmi í öllu skipulagi. Gangstígar hafa ALDREI verið hannaðir með hjólreiðar í huga á Íslandi.  Það eiga allir að hjóla úti á götu þá fyrst verður hjólreiðafólk sýnilegt.

Af reynslu minni frá Reykjavík þá geri ég ráð fyrir að viðbrögð bæjaryfirvalda á Akureyri verði að setja slá yfir gangstíginn. Þá má búast við því að einhver slasi sig á henni því líklega verður hún sett upp þar sem gróðurinn er þéttastur við stíginn og lítil lýsing. En eins og í Reykjavík telst það ekki til slysa þar sem það kemur í veg fyrir að okkar ástkæru bílar "slasist".


mbl.is Hjólaði á bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Jú, það er mjög líklegt að það fjölgar á þessum asnalegum slám. Ég hef fengið fullt af marblettum á slíkum hindrunum sem voru settar á leiðunum mínum hér í Mosfellsbænum og víðar.

Úrsúla Jünemann, 15.7.2008 kl. 00:42

2 Smámynd: Vilberg Helgason

Hugmyndafræði samgönguyfirvalda í Reykjavík og Akureyri er skelfileg á báðum stöðum. Allt stuðlar að því að auka bílaumferð í stað þess að draga úr henni.

Besta dæmið er þétting byggðar sem er það vondasta sem hægt er að gera hjólreiðasamgöngum.

1962  að ég held var tekin ákvörðun í kaupmannahöfn um að draga úr þéttingu byggðar og gera frekar garða og afdrep fyrir aðra umferð sem varð upphafið að aukningunni sem átt hefur sér stað í hjólreiðum í allri kaupmannahöfn.

Hérna er þrengt að stígum og gönguleiðum með nýjum byggingum og auknum bílastæðum.

Vilberg Helgason, 15.7.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband